Eyþór Þorláksson
 |
Eyþór Þorláksson er fæddur 1930 og byrjaði ungur að leika á hljóðfæri. Frá 1946
til 1992 lék Eyþór í ýmsum íslenskum og erlendum danshljómsveitum. Á árunum 1950
- 1952 stundaði hann nám í gítarleik í Englandi, Danmörku og Svíþjóð og árið 1953
í Madríd hjá Daniel Fortea og Quintin Esquembre. Á árunum 1954 - 1957 lærði hann
hljómfræði og kontrapunkt hjá Dr. Urbancic og 1958 - 1961 var hann við framhaldsnám
í gítarleik hjá Garciano Tarragó í Barcelona. Síðan hefur hann verið aðal gítarkennari
við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og hefur útsett og skrifað mikið kennsluefni fyrir gítar,
en er nú hættur störfum og heldur áfram að
útsetja og
semja fyrir gítarinn.
|
|
Graciano Tarragó með Eyþóri
|
|
|