English  Español  Íslenska  

Sveinn Eyþórsson

Sveinn (1964) er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Sonur Eyþórs Þorlákssonar (1930), gítarleikara og Sigubjargar Sveinsdóttur (1941-1978), flugfreyju. Sveinn hóf ungur nám í klassískum gítarleik hjá föður sínum. Hann hefur samið nokkur verk og kennsluefni fyrir gítar. Frá árinu 1989 hefur Sveinn þróað Da Capo kerfið fyrir tónlistarskóla. Sveinn er búsettur í Setbergshverfinu í Hafnarfirði ásamt Kristínu Björgu Ólafsdóttur (1964), hjúkrunarfræðingi og Sigurbjörgu (1992) dóttur sinni.

Menntun

1998 - 1999 Högskolan í Skövde, Svíþjóð. B.Sc. í tölvunarfræði með áherslu á upplýsingakerfi.
1994 - 1996 Högskolan í Skövde, Svíþjóð. Námsbraut í upplýsingakerfum.
1986 - 1987 Framhaldsnám í gítarleik, einkatímar hjá F. Garrido, Barcelona, Spáni.
1981 - 1986 Conservatori de Música Isaac Albéniz, Girona, Spáni. Lauk kennaraprófi í gítarleik.

Störf

2007 Kaupþing, tölvunarfræðingur
2001 - 2007 Kögun, tölvunarfræðingur
1999 - 2001 Reiknistofa bankanna, kerfisfræðingur
1996 - 1998 Gítarkennari í Tónlistarkóla Hafnarfjarðar og Tónlistarskóla Garðabæjar
1989 - Eigin hugbúnaðarþjónusta fyrir tónlistarskóla í hlutastarfi
1988 - 1994 Tónlistarskóli Garðabæjar, tónlistarkennari
1985 - 1994 Gítar- og bassaleikari í hlutastarfi
1981 - Tónsmíðar